Dabbi hagræðir sannleikanum

Það fylgdi nú fréttinni um Össur að lánadrottnarnir vildu ekki sjá eina krónu af fjárhæðinni á Íslandi. Það var skilyrði lánsins. Það hentar hins vegar ekki Dabba og co. að birta slíkar staðreyndir. mbl og mogginn er bara grín... Hjálpi þeim sem nota þessa miðla til að mynda sér skoðanir um fréttatengd málefni þessa dagana.
mbl.is Fé fæst til Íslands á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömmi veit ekki neitt

Ömmi er þingmaður. Ömmi afgreiðir stórmál eins og umsókn að ESB, án þess að þekkja ferlið. Það hefur ekkert breyst í samningarferli ESB frá því að Alþingi samþykkti þá tillögu sem stjórnarsáttmálinn hvað á um.

Ömmi veit að með tíð og tíma muni íslendingar átta sig á þeirri kjarabót sem felst í ESB aðild. Ömmi rær því öllum árum við að stöðva frekari fræðslu og upplýsingamiðlun. Íslendingar eiga alls ekki að fá að vita neitt um ESB, því ef þeir fá að vita eitthvað þá vita þeir meira en Ömmi. Og það líkar ekki Ömma.... Ef Ömmi þekkir ekki ferlin sem hann samþykkir í stórmálum eins og ESB, er þá hægt að treysta Ömma fyrir smámálunum? Jú - kannski hann ráði við þau, en í öllum stærri málum ætti hann að kalla til varamann. Ekki er a.m.k. hægt að treysta á að hann setji sig inn í málin. En eitt kann hann - og það er að vera á móti. Íslendingar kunna að meta menn sem eru á móti. Enn betra er ef þeir ekkert vita og eru samt á móti. Það veit Ömmi sem ekkert veit.


mbl.is Stefnan þarf að vera ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tveir menn gegn einni þjóð

Sorglegt að fylgjast með Ögmundi.  Hann svífst einskis til að ná sínu fram - er greinilega sama um áhrif gjörða sinna á land og þjóð.  Ögmundur veit vel að það hefði aldrei verið raunhæfur möguleiki á að ná samningum á 2 mánuðum.  Hversu langan tíma hefur IceSave tekið?  Hann er hér aðeins að slá sér pólitískar keilur og hikar ekki við að beita lýðsskrumi af verstu sort.

 

Davíð Oddson er höfuðábyrgur fyrir því að efnahagur og efnahagskerfi Íslands hrundi.  Ögmundur er höfuðábyrgur fyrir því að okkur ætlar ekki að takast að vinna okkur út úr hruninu.  Aldrei fyrr hafa jafn margir átt jafn mikið inni hjá tveimur gömlum þrjóskupúkum sem allt þykjast vita.


mbl.is Ítrekar að hægt sé að flýta viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AUÐVITAÐ!!!

Þetta er grundvallaratriði í stjórnarsáttmálanum og ef menn skynja hættu á því að menn standi ekki við stjórnarsáttmálan þá væri nú eitthvað skrítið ef mikilvægi málsins væri ekki ítrekað í persónulegum samtölum. Fréttin í þessu er að það skuli virkilega þurfa að ítreka stefnu stjórnarinnar með þetta skýrum hætti fyrir þessu veruleikafirrta and-ESB liði. Það er algjört grín að menn eins og Ásmundur Einar skuli komast á þing.
mbl.is Hótað embættismissi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjörtur J.

Hver er dómgreind ritstjóra sem lætur Hjört J. fjalla um IceSave eða ESB?  Hver er eiginlega ritstjóri á Mogganum?  Bandit
mbl.is Segja stjórnvöld eiga að standa með Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara 25 kall norskar!

Hvahva, þetta er gjafaprís!  25 norskar krónur er mjög venjulegt verð á ís hérna úti.  Íslendingar þurfa bara að átta sig á því að með krónuna að vopni eru þjóðin dæmd til fátæktar.  Sumir fagna því - aðrir vilja ganga í ESB.  Akkurat núna virðist staðan vera þannig að fleiri fagna því, en fólk fær í þessu þessu tilfelli að kjósa um eigin gæfu.
mbl.is Kaupmáttur útlendinga hækkar verð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

One small step...

Góðir hlutir gerast hægt.  Það er mikil vinna eftir við að sannfæra íslenska þjóðarsál, en ég er sannfærður um að þegar rykið sest sem "ESB andstæðingar" hafa þyrlað upp, þá muni almenningur kjósa með sínum hagsmunum en ekki hagsmunum sérhagsmunahópa.
mbl.is Mælir með aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki rétt

Þetta er ekki fyrsta gull norðmanna í skíðagöngu.  Bjørgen hefur tekið tvö gull í skíðagöngu kvenna, þannig að þetta er fyrsta "karlagullið".

 

Ótrúlega gaman annars að búa í noregi og vera "norskur" þegar þessi keppni er í gangi.  Gullmöguleikar á hverjum einasta degi og norska ríkissjónvarpið algjörlega undirlagt ólympíuleikunum. Þessar tvær vikur er svo til ekkert á NRK1 og NRK2 en Ólympíuleikar og fréttir (sem flestar snúast um ólympíuleikana).

 

Gaman, gaman :)


mbl.is Norðmenn brutu ísinn eftir skelfilega byrjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég myndi vilja sjá þær spurningar sem Heimssýn kýs að birta ekki

Það er alveg öruggt að Heimssýn spurði fleiri spurninga. Ef þetta var virkilega mest krassandi fréttin úr könnun þeirra, þá þætti mér gaman að sjá niðurstöður úr öðrum spurningum... Þetta eru nú meiri brandarasamtökin!

Þessi aðgreining er mjög áhugaverð. Á meðan það liggur ljóst fyrir að það að ganga í ESB er fyrst og fremst aðgerð í þágu almennings og fyrirtækja í landinu, þá er áherslu á að vinna úr vanda heimila og fyrirtækja stilt upp sem öðrum kosti. Þetta er ekki bara villandi, heldur sérlega ófagmannlegt. ESB er fyrir almenning.


mbl.is Áherslan á heimilin og fyrirtækin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg hreint prýðileg grein frá Ólafi Arnarsyni

http://pressan.is/Frettir/Lesafrett/pressuuttekt-olafs-arnarsonar-draumalandid/

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband