Dabbi hagræðir sannleikanum

Það fylgdi nú fréttinni um Össur að lánadrottnarnir vildu ekki sjá eina krónu af fjárhæðinni á Íslandi. Það var skilyrði lánsins. Það hentar hins vegar ekki Dabba og co. að birta slíkar staðreyndir. mbl og mogginn er bara grín... Hjálpi þeim sem nota þessa miðla til að mynda sér skoðanir um fréttatengd málefni þessa dagana.
mbl.is Fé fæst til Íslands á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

 

Hver "hagræðir" og hver ekki, má deila um ,en eftir þeim upplýsingum (og reyndar fréttum) sem ég hef, þá valdi Össur sjálft að boða út hlutabréfaaukningu í Danmörku, og hefur fyrirtækið jafnframt lýst yfir áhyggjum og óánægju með "fjármálaumhverfið" og óstöðugleika krónunnar, sem aðalástæðu fyrir því að þeir flytja meira og meir af starfsemi sinni erlendis.

Þetta gera þeir vel vitandi, að svo lengi sem ekki verður stöðugleiki og festa í Íslensku efnahagslífi, er erfitt fyrir fyrirtæki sem byggir sína afkomu á erlendum viðskiftum að mestu leiti, að halda sínum rekstri á skynsamlegu ög stöðugu plani.

Lýsi hér með eftir "link" á þá frétt sem staðfestir þessi "skilyrði" sem þú vísar til.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 18.3.2011 kl. 12:54

2 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Geri ráð fyrir að það séu þessi ummæli forstjóra Össurar í VB 10mars, sem þú ert að vitna til: "Að hans sögn (??) var lánið skilyrt þannig að ekki megi geyma stóra hluta þess á Íslandi. Nota megi það til þess að greiða upp lán við Arion banka, eins og fram kom á vb.is í gær, og að einhverju mæta veltufjárþörf móðurfélagsins.

Meðan þú skrifar:  "að lánadrottnarnir vildu ekki sjá eina krónu af fjárhæðinni á Íslandi"

 

Það er hægt að hagræða á margann hátt.

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 18.3.2011 kl. 13:42

3 Smámynd: Einar Solheim

http://epaper.visir.is/media/201103100000/pdf_online/1_1.pdf

Einar Solheim, 18.3.2011 kl. 15:00

4 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Mikið til það sama og í fréttinni sem ég vísaði á og “kippir” stoðunum undan þinni “hagræðingu” um þeir vilji ekki að “einni krónu” sé varið á Íslandi, þarna stendur m.a.

 

Erlendar lánastofnanir vantreysta

ekki íslenskum fyrirtækjum

heldur því umhverfi sem þau

búa við,“ segir Finnur Oddsson,

framkvæmda stjóri Viðskiptaráðs.

Þar vísa ég til tilviljunarkenndrar

og oft órökréttrar lagasetningar,

versnandi skattaumhverfis,

gjald eyrishafta og frjálslegrar

meðferðar stjórnvalda á stjórnsýslulögum

og stjórnarháttum.“

 

Svo mörg voru þau orð í garð ríkjandi stjórnvalda og þeirra efnahagsstjórnar.

En þar sem innlegg þitt ber keim af því þér líki ekki við Davíð Oddson, meir en að þú hafir áhuga á að rökræða efnahagsmálin, þá “hoppa” ég af hæer með, nenni ekki að rökræða um persónur bara persónanna vegna.

 

MBKV

KH

Kristján Hilmarsson, 18.3.2011 kl. 16:28

5 Smámynd: Einar Solheim

Er ekkert viss um að ég hafi neitt meira á móti Davíð en gengur og gerist. Það sem ég gagnrýni er að Davíð skuli stjórna Morgunblaðinu og mbl.is - sérstaklega þegar efnistök og framsetning bera þess greinilega merki. Ég sagði ekkert um núverandi stjórnvöld og þeirra frægðarför. Þau koma þessu máli ekkert sérstaklega við. Staðreyndin er að Dabbi lætur skrifa fyrir sig grein um að nú streymi fjár til Íslands og tilgreinir lánveitingu þar sem fréttaflutningur snérist fyrst og fremst að lánveitendur vildu ekki sjá féið fara í uppbyggingu á Íslandi. Það er fullkomlega óásættanlegt.

Einar Solheim, 18.3.2011 kl. 20:10

6 Smámynd: Einar Solheim

Fleiri athugasemdir við þessa sömu grein Dabba og co:

http://eyjan.is/2011/03/18/sendiherra-morgunbladid-komid-i-innileg-fadmlog-vid-utvarp-sogu/

Einar Solheim, 18.3.2011 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband